05.03.2010 08:41:31 / listmunir
Er með fast pláss í Kolaportinu og hef þar gott úrval af listmunum. Er alveg hætt í Mjódd og sel núna mest í Kolaportinu og til Íslandía í Kringlunni. Einnig er ég með gallerý heima í Saurbæ og hef opið eftir samkomulagi fyrir hópa og hægt að panta tíma í síma 8696135.
Það er opið á laugardögun og sunnudögum frá kl:11-17:00 báða dagana, í Kolaportinu Velkomin að kíkja til mín. Guðfinna
»
16.01.2009 22:46:20 / listmunir
Ég er með sölubás í Kolaportinu alla laugardaga og sunnudaga í janúar og febrúar. Það er opið frá Kl: 11:00-17:00 báða dagana. Einnig er ég með sölubás í Mjódd, en er ekki búin að tímasetja þar. Er með gallerí í Saurbæ og tek á móti hópum eftir samkomulagi. Hringja þarf áður og panta tíma.
Hálsmen:
Er með úrval af hálsmenum úr hrauni og ferskvatnsperlum. Kr. 2.000,-
Einnig úr bræddu gleri og perluhálsmen í miklu úrvali. Kr. 1.500,-
Það er hægt að fá eyrnalokka í stíl. Kr.1.000-1.500
Armbönd: Kr.1.200,-
Silfur og gyllt með steinum.
Kertastjakar: Kr. 500-1.500
Mismunandi útfærslur og alltaf eitthvað nýtt.
Glermyndir:
Í ramma og rammalausar Kr. 1.000-2.900
Glerskúlptúr:
Mismunandi gerðir Kr. 1.000-4.900,-
Þetta er aðeins hluti af þeim listmunum sem ég er með og verið velkomin að kíkja. Sjón er sögu ríkari.
Guðfinna Þorvaldsdóttir glerlistakona, Saurbæ 851 Hella. Sími 8696135. Netfang saurbaer at eyjar.is
»
14.01.2009 21:58:56 / listmunir
Þegar ég vaknaði í morgun þá var ég þess fullviss að þetta yrði góður dagur. Ég var að búa til glerskálar og myndir ásamt heimilisverkum. Bakaði pönnukökur með kaffinu og bar fram með rjóma.
»