16.01.2009 22:46:20 / listmunir
Ég er með sölubás í Kolaportinu alla laugardaga og sunnudaga í janúar og febrúar. Það er opið frá Kl: 11:00-17:00 báða dagana. Einnig er ég með sölubás í Mjódd, en er ekki búin að tímasetja þar. Er með gallerí í Saurbæ og tek á móti hópum eftir samkomulagi. Hringja þarf áður og panta tíma.
Hálsmen:
Er með úrval af hálsmenum úr hrauni og ferskvatnsperlum. Kr. 2.000,-
Einnig úr bræddu gleri og perluhálsmen í miklu úrvali. Kr. 1.500,-
Það er hægt að fá eyrnalokka í stíl. Kr.1.000-1.500
Armbönd: Kr.1.200,-
Silfur og gyllt með steinum.
Kertastjakar: Kr. 500-1.500
Mismunandi útfærslur og alltaf eitthvað nýtt.
Glermyndir:
Í ramma og rammalausar Kr. 1.000-2.900
Glerskúlptúr:
Mismunandi gerðir Kr. 1.000-4.900,-
Þetta er aðeins hluti af þeim listmunum sem ég er með og verið velkomin að kíkja. Sjón er sögu ríkari.
Guðfinna Þorvaldsdóttir glerlistakona, Saurbæ 851 Hella. Sími 8696135. Netfang saurbaer at eyjar.is
»
14.01.2009 21:58:56 / listmunir
Þegar ég vaknaði í morgun þá var ég þess fullviss að þetta yrði góður dagur. Ég var að búa til glerskálar og myndir ásamt heimilisverkum. Bakaði pönnukökur með kaffinu og bar fram með rjóma.
»